Við leitum að liðsauka á lager | Warehouse Team Member
- 🇮🇸 Iceland
- On-site
- 17 hours ago
- SEM
Not enough detail in this posting to match
JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélögum til starfa á lager. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér móttöku á vörum frá birgjum, tiltekt og afgreiðslu pantana ásamt öðrum verkefnum sem tengjast daglegum rekstri lagersins.
Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.
Helstu verkefni
- Móttaka og frágangur vara frá birgjum
- Tiltekt og afgreiðsla pantana
- Skráning og meðhöndlun vara í vöruhúsakerfi
- Önnur verkefni tengd daglegum rekstri lagersins
- Þátttaka í stöðugum umbótum
Hæfniskröfur
- Nákvæm, jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og áhugi á teymisvinnu
- Frumkvæði, þjónustulund og metnaður
- Hæfni til að vinna samkvæmt skilgreindum ferlum
- Góð enskukunnátta
- Íslenskukunnátta er kostur
- Reynsla af lagerstörfum er kostur
- Lyftararéttindi eru kostur
Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast og því hvetjum við áhugasöm til að sækja um sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitirHreinn Ingi Örnólfsson í netfanginuhreinn.ornolfsson@jbtmarel.com.
Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.
Við leitum að liðsauka á lager | Warehouse Team Member · Jbtm